Friday Mar 11, 2022

#5 Ósýnilega fólkið - Nafnlaus heimilislaus maður 1

Viðmælandi okkar í Ósýnilega fólkinu þessa vikuna hefur lifað tímana tvenna. Hann er fimmtugur í dag en byrjaði um 15 ára aldurinn í frekar harðri neyslu. Ævisaga hans til þessa er mjög ævintýraleg og jafnvel reyfarakennd á köflum. Hann vill þess vegna ekki koma fram undir nafni.

Hann var á miklu heimshornaflakki með foreldrum sínum sem barn og bjó meðal annars í Ísrael og Pakistan þegar faðir hans starfaði fyrir Sameinuðu þjóðirnar í þá daga. Hann hafði alltaf gaman af því að teikna og fór einu sinni í myndskreytingarnám í New Jersey í Bandaríkjunum. Neyslan náði samt snemma yfirhöndinni á  lífi hans enda hefur hann upplifað nokkuð stór áföll á lífsleiðinni. Faðir hans tók sitt eigið líf þegar viðmælandi minn var nítján ára gamall og það gerði eldri systir hans líka nokkrum árum síðar.

Upp úr því festist hann í vítahring neyslu og afbrota og fór marga hringi inn og út af Litla hrauni á margra ára tímabili. Hann fluttist svo til Asíu til að breyta um umhverfi en neyslan fluttist með honum og hann lenti í margskonar vandræðum með sjálfan sig þar. Hann hefur ótal sinnum setið inni í Tælandi og var eitt sinn fangelsaður í Japan þegar hann var þáttakandi í smygli á fólki sem var skipulagt af írönskum glæpamönnum.

Hann hefur í dag róast talsvert og finnst eins og neysla sín sé komin í betra jafnvægi. Hann hefur líka hætt öllum afbrotum eftir að hann komst á örorkulífeyri fyrir nokkrum árum síðan og líf hans er ekki jafn óreiðukennt og það var áður. En hann er heimilislaus og hefur verið það í nokkur ár. Fastagestur á gistiskýlinu og dreymir um að komast í einhverja varanlega lausn.

© 2023 Ósýnilega fólkið

Podcast Powered By Podbean

Version: 20241125